Þá hef ég tíma í að skrifa...Harpa Snæbjörnsdóttir
ég ættlaði að vera búin að blogga eitthvað en bara ekki búin að hafa tíma, mikið að gera.
Byrja á byrjununni: Ég var svo duggleg að ná mér í pest og vildu einhverjir kennarar senda mig upp á spítala því ég leitt svo illa út og átti erfit með að fara út úr herberginu mínu og á klóið...en sem betur fer gekk þetta yfir og var ég orðin dáítið stresuð að ég myndi ekki ná öllu fyrir sýninguna. En á miðvikudeginum 31. okt fórum við Jens með myndirnar mínar til Köpen. Síðan áhváðu prentarar skólans að fara í verkfall og var farið inn á aðalskrifsofu skólans og í tölvu þar til að skrifa verðlista upp aftur, en prentarinn þar er svo gamall að ég gat ekki tengt tölvuna mína við hann, en þeir segja að fall sé farar heil ég trúi því ekki alveg en það gekk dálítið mikið á afturfótunum hjá mér. En þetta náðist nú allt á endanum og
sýninginn gekk mjög vel og æðislegur pinnamatur og kampavín og bjór...svo fékk ég blóm, vín og pakka. En það besta var að mamma, pabbi og Gauti komu og spilaði gauti á saxan. En pabbi og Gauti voru hérna til sunudags og mamma fór á miðvikudagskvöldið, svo það er búið að vera æðislega gaman hjá mér og var ég í köpen allan tíman nema á mánudeginum þegar ég var að vinna, en ég fékk frí á þriðjudeginum og verð því ein nína í eldhúsinu í fjóra daga og veisla á morgun og fá nemendurnir að ráða matseðlinum og verður pylsupartý svo ég á rólegan dag þanig á morgun, nema, ég þarf að bakka um 70 pylsubrauð því þau komu ekki í dag.
En nú er farið að snjóa og farið að styttast mikið í að ég komi heim, en ég kem heim þann 13. desember og er herbergið mitt orðið alveg rosalega tómlegt.
En nóg um mig, hún mamma mín var að útskrifast úr háskólanum með bara glimrandi einkun og er ég ekkert smá stolt af henni.
Ég ætti kanski að takka hana til fyrirmyndar og drýfa mig í háskóla, en umsóknarbrálæðið byrjar núna strax í janúar, svo ég er strax farin að vinna í því öllu saman aftur.
Kossar og knús
Jæja allir að koma á málverkasýninguna mína :ÞHarpa Snæbjörnsdóttir
Ég verð með fyrstu einkasýninguna mína núna 2. nóvember í Kaupmannahöfn. Staðurinn heitir Zama og er hann á Thorvaldsensvej 3 Dk 1871 Frederiksberg C. Húsið opnar klukkan fimm og veitingar og drykkir fyrir gesti og gangandi. Svo ég hef eingan tíma til að vera að blogga, það er dálítið mikið að gera hjá mér þessa stundina. Vona að þið hafið það sem best.
Kossar og knús
Þá eru komnar myndir af kaffi RetroHarpa Snæbjörnsdóttir
en hvað er annars að frétta?kossar og knús
Vááááááá það er alltof mikið að gera hjá mérHarpa Snæbjörnsdóttir
Ég er semsagt komin til Danmerkur aftur og var alveg æðislegt að vera heima í heila viku.
En ég er bara búin að vera að vinna eins og brálæðingur, bæði í eldhúsinu og málarastúsinu, sett upp sýningu á morgun en hana fékk ég í gegnum skólan og verðum við 6 mð sýninguna, gamlir nemendur frá Thorstedlund. Svo þann 1. nóveber verð ég með einkasýningu, en báðar sýningarnar verða í Köpen. Svo á morgun förum við þrjú frá skólanum með lestinni með málverkinn okkartil Köpen, en við getum ekki fengið skólabíllinn lánaðan...svo þetta verður dálítið fjör. En við erum bara þrjú með málverk, einn með teikningar og tvær með videoart.
Í gær var skólapartý og þemað var japanskt, svo það var æðislega gaman hjá mér í eldhúsinu að elda japanskt...vona að ég fái frá einhverjum mynd af mér og Henrik því við vorum ekkert smá flott. Við vorum svo flott að Elma greyið fór bara að hágráta þegar hún sá okkur.
En núna er sprengjuæfimg í skóginum hjá hernum, svo með smá millibili hrekk ég í kútt.
En ég vona að allir hafi það sem best heima.
Kossar og knús
Tveir og hálfur dagur...Harpa Snæbjörnsdóttir
...þangað til ég kem heim. En mig langaði nú aðalega að láta ykkur vita að það eru komnar inn nýjar myndir (sept.) og að ég verð líklega með tvær sýniongar í Köpen áður en ég kem heim um jólinnkossar og knús
Ég kem í heimsókn þann 17.sept.Harpa Snæbjörnsdóttir
En annars er ég bara búin að vera að vinna, mála og vera á msn og tala við Mark og er búin að ná Helgu einu sinni, ég meina það eruð þið eingir tölvunördar sem ég þekki eða eruð þið kannski öll í 4 vinnum?
En ég er að koma og vona að ég nái að hitta einhvern, ég veit að ég næ að hitta Mark
En ég fór með skólastjóranum að versla í Metro í dag og bauð hann mér launahækkun og sagði að Mark gæti örugglega fundi'ð sér vinnu niðri í Frederiksund...humm, tölurnar voru ekki nógu háar. Sé ykkur fljótt
Kossar og knús
Mark kom í heimsókn yfir helginaHarpa Snæbjörnsdóttir
Mark lenti um níu leytið á dönskum tíma og sótti ég hann upp á flugvöll. Þaðan fórum við til Köpen og fórum út að borða á Indverskum veitingastað sem var æðislega góður. Á laugardeginum fékk hann smá sýnistúr um skólan og leist honum mjög vel á allt nema skordýrinn og kongulóavefinaEn annars eru komnar nújar myndir inn.
kossar og knús
Nú er ég komin í skrifstuðHarpa Snæbjörnsdóttir
Ég er núna komin með eitthvað til að segja frá. Éger komin með nýtt verkstæði sem er grafíkverkstæðið og komast öruglega þrír bílar inn.Það er búið að bjóða mér að halda sýningu á stað sem er í Frederiksberg og þar býr víst eitthvað af ríkafólkinu svo vonandi næ ég að selja eitthvað. En annars er ég ekki búin að vera gera mikið annað en að vinna og mála og er því búin að senda inn nýjar myndir merktar júli og eru þar myndir af því sem ég er búin að vera að gera upp á síðkastið. En á morgun fer ég með Kim til Köpen í búðaráp og til að fá okkur eitthvað að borða því við sáum mús í eldhúsinu í dag. Svo ég vona að það verði gott veður á morgun.
kossar og knús
Komin til DanmerkurHarpa Snæbjörnsdóttir
Jæja þá er maður komin í Danaveldi aftur og byrjuð að mála. Ég byrja í vinnunni á miðvikudaginn og fæ því smá tíma til að fá alla papíra og koma mér fyrir aftur og auðvitað fór sólinn að skína um leið og ég kom eða daginn eftir var ekki komin fyrr en klukkan níu um kvöldið. En annars er ekki mikið að frétta af mér eins og er, skrifa aftur þegar ég hef frá einhverju að segja og er í skrifstuði.Ég kem heim í sumarfríHarpa Snæbjörnsdóttir
Ég kem heim þann 18. júní og fer aftur út þann 13. júlí að vinna.Ég vona að ég nái að hitta einhvern.
